Kæru spunaspilarar.
Ég var að enda við að eyða út korkafærslu sem ég rak augun í og bar yfirskriftina “Hvernig finnst þér Vargur vera að standa sig sem admin”.

Vissulega voru umsagnirnar góðar, og ég þakka þeim sem tjáðu sig, en það breytir ekki þeirri staðreynd að vefsvæðið er ekki hugsað til þess að ræða málefni sem ekki flokkast undir spunaspil, og klárlega ekki til að velta upp spurningum um ágæti eður lesti þeirra sem það heimsækja.

Ég beini því þeim vinsamlegu tilmælum til lesenda að halda sig innan marka efnisins í skrifum sínum.

Með kveðju,
Vargur, umsjónarmaður spunaspila.
(\_/)