Flestir gamlir Roleplayerar muna eftir Fáfnismótunum. Aðrir tóku seinna við þessum spilamótum en einhvern veginn urðu þau aldrei eins. Aðsóknin minnkaði hratt og fyrir endann urðu þetta nær eingöngu Magic mót. Ég veit ekki til þess að spilamót hafi verið haldið í yfir þrjú ár.
But who needs them? Við erum með internetið, Gemsa og afbragðs spilaaðstöðu í Nexus. Ef fólk vill fá tilbreytingu í spileríið hjá sér, hvernig væri þá að nota korkana til að skrá spilahópa. Einhver hugaður vefsmiður gæti jafnvel sett up síðu sem væri linkuð héðan. Ég held að þetta gæti orðið algjör snilld ef fólk hefur áhuga og tekur þetta alvarlega. Svo myndi þetta kannski þjappa saman þessum fáu roleplayerum í landinu.
Endilega segið mér hvað ykkur finnst
kv.