Ok fyrir þá sem ekki vita það þá eru clueless týpa af spilurum sem gera ótrúlega heimskulega hluti án sjáanlegrar ástæðu. Enginn skilur hvað fer fram í þessum undarlega heila þeirra. Já þetta eru gauranir sem fara að pússa byssurnar sínar inná McDonalds á happy kid sunday's, eða ráðast á stóra drekann með vasahníf(head of vecna comes to mind). Þeir eru skárri en Munchkins því þeir eru ekki að reyna að vera glataðir spilarar (ímyndið ykkur clueless munchkin (the horror, the pain)).

Hér er hægt að finna ótrúlegustu sögur af clueless shadowrun spilurum (frekar auðvelt að vera clueless þar).

http://archive.dumpshock.com/CLUE/

En ég er hér með eina sem gerðist þegar ég var að spila.
Ég vil taka það fram að sá sem er clueless hér er oftast fínn spilari en á það til að taka clueless köst þegar hann verður fúll eða finnst vera komið ósanngjarnlega fram við hann (þó það er oftast aðstaða sem hann kemur sjálfum sér í).

Mig minnir að við höfum verið 4 spilarar og stjórnandi. Ég var að spila svalan reddara svona eiginlega Jack of all trades meðan það voru einn ork og eitt troll, báðir bardagamaskínur. Man ekki hvort það var einn í viðbót en hann kemur ekkert við sögu.
Tröllið var frekar hægfara í kollinum og í sameiningu tókst honum og orkinum að valda gífurlegum skaða í apartment byggingu sem ég átti heima í, þótt þeir voru bara að kíkja í heimsókn. Lyftuni var rústað og einhvern veginn tókst þeim að kveikja í kjallaranum. Ég slapp sem betur fer og er frekar pissed útí þá en ég fæ að koma mér fyrir heima hjá orkinum sem þótt ótrúlegt sé bjó í suburban hverfi, einbýlishús og alles.

Þar svaf ég og trollið líka og en var samt ekkert alveg tilbúinn að fyrirgefa orkinum því hann hafði líka næstum drepið mig í bílslysi því hann keyrði eins og asni.

Næsta dag vekur hann mig með því að setja headphones á mig tengda við 500.000 króna græjurnar hans og hækka vel í einhverju metal rokki. Ég hrökk á fætur og reif upp byssuna (sem betur fer ekki wired því þá hefði ég ábyggileg skotið allt) og hann stóð þarna og hló af mér og gekk inn í eldhúsið.

Nú var mælirinn fullur og á minn svala hátt tek ég upp silencer, skrúfa hann á byssuna, læt nokkur blý vaða í græjurnar og set svo byssuna frá mér aftur. Mér þótti þetta ekki mikið miðað við að ég var orðinn heimilislaus og er rétt að standa á fætur þegar orkinn kemur hlaupandi inn eftir að hafa heyrt lága skothvelli og verður vægast sagt brjálaður.

Hann ætlar að rjúka í mig en ég hleyp og fel mig bakvið tröllið sem stendur eins og þvara og stoppar orkinn. Þá hleypur hann og klifrar útum gluggan (????), hleypur inní bílskúr og nær í stóra Machinegun-ið sitt (ekki svona lítill rifill heldur huge byssa á stærð við minigun).

Ég skíthræddur hleyp út á götu á þar sem rent-a-cop er að keyra eftir veginum og stansar beint fyrir framan húsið þegar hún sér einhvern brókalalla hlaupa um. Athygli þeirra beinist þó frekar að orkinum sem kemur á eftir með meiri vopnabirgðir en öll sveitinn þeirra. Orkin skransar 2 metra frá löggubílnum og byrjar að spreyja skotum yfir gapandi löggurnar. Tekur það fram að hann miði á bensíntankinn til að vera öruggur með að drepa þær. Honum tókst það en auðvita sjálfan sig í leiðinni þar sem hann stendur svona nálægt bílnum.

Ég slapp, sprettandi eftir götunni á brókinni ens og fáviti. Enda brókin nú orðin aleiga mín eftir að það fá sem ég átti eftir var ennþá í húsinu meðan trollið með froðuheilan sat þar inni og boraði í nefið og var að reyna að fatta hvaða læti þetta voru úti. Ótrúlegt en satt.
<br><br>Only two things are infinite, the universe and human stupidity, and I'm not sure about the former.

Albert Einstein
“Where is the Bathroom?” “What room?”