Mig langaði til að forvitnast um það hjá ykkur (ef ég má gerast svo djörf) hvernig ykkur finnst best að byggja upp spilahóp. Ég vil persónulega ekki hafa færri en 4 spilara og EKKI fleiri en 10, helst ekki meiri aldursmun en 5 ár milli elsta og yngsta meðlims, kynjablöndun er bara jákvæð en ALLS EKKI kærustupar (bræður geta líka verið erfiðir) :) LOL!!!! Svo er auðvitað spurning um að fólk nái vel saman, séu með svipaðan húmor og taki sjálft sig ekki of alvarlega.

Þau (þeir..ég er bara að reyna að vera PC) ykkar sem hafa gert eitthvað af því að stjórna spilum: hafiði þurft að eiga við ósætti innan hóps? Skiptuð þið ykkur af því?

Allavegana þá vildi ég spyrja hvað það er sem þið leggið áherslu á í þessum efnum, eða viljið varast…. Svona almenn viðhorf ykkar :)

Ykkar fröken Spuna-siðir,

Lynx