Adolf Heslich Jæja ég er búinn að vera að pæla út þennan karakter heillengi og er ekki einu sinni byrjaður að spila hann en hann er samt orðinn skemmtilegasti karakter sem ég hef skrifað.

Adolf ólst upp á bóndabæ en faðir hans var Knight protector of the great kingdom(Prestige class úr sword and fist) þannig að hann var lítið heima við en hann kenndi Adolf að bregða fyrir sig sverði og að sitja hesti. Adolf á yngri bróður að nafni Fritz sem að var alltaf fremur veiklulegur en þó ekki illa haldinn eða sjúkur eða neitt slíkt, hann náði aldrei tökum á því að nota sverð né nokkuð annað vopn en það var annað sem að hann notaði sem vopn og það voru galdrar, allt frá unga aldri hafði Fritz getað gert hina og þessa blossa og hljóð með engu nema orðum og heryfingum, en hann var enginn galdramaður.
Móðir Adolfs og Fritz bjó á bænum með þeim og ól þá upp að mestu leiti. En þegar Adolf var orðinn 19 ára særðist faðir hans í bardaga og lét af störfum sem knight protector. Adolf sem nú hafði lært þær siðareglur sem að faðir hans fór eftir, hélt af stað til að komast í raðir riddarana. Fritz hafði hinsvegar farið frá bænum 1 ári á undan Adolf sem lærlingur hjá galdramanni að nafni Ace.

Þar með byrjar feril Adolfs Heslich em adventurer.

Kv.

Angelfire