hæ.. ég hef aldrei spilað D&D en ég hef verið að lesa greinarnar hérna svona létt yfir og ég er alveg rosalega forvitin hvernig þessi leikur gengur fyrir sig. Ef einhver nennir að útskýra hvernig þessi leikur gengur fyrir sig þá yrði það vel þegið því að ég er stelpa og vinir mínir spila ekki svona leiki þannig að ég þekki engann til að útskýra þetta fyrir mér. Það yrði líka vel þegið að útskýra hvað LN, CN, LE, CE, o.s.fv. þýðir og líka int og lvl, bara ef einhver nennir svona að útskýra aðal atriðin, og jafnvel gefa einhverja síðu upp þar sem ég get séð meira af þessu. takk..