&lta href="http://rip.hugvit.is/roleplay>Jarðöflin - spunaspil>&lt/a>“

ég er búinn að vera að skemmta mér konunglega á því að búa til þetta spunaspil á íslensku. það hefur verið lítið annað en mjög yndæl skemmtun að finna íslensk orð á þetta.

ég hef verið að bæta þó nokkru við núna undanfarið og kem til með að bæta meira við á næstunni, setja textann betur upp og flokka kaflana betur.

en það sem ég myndi vilja fá eru spurningar og ábendingar um hvað vantar og hvað hljómar skringilega.

Planið er eins og Þorsteinn skaut að mér núna nýlega…að klára þetta og stjórna síðan kerfinu á næsta spilamóti. til þess að það sé mögulegt þarf ég að prufukeyra spilið, flokka hæfileikana og búa til sérstaka hæfileika, og síðast en alls ekki síst að búa til hreyfilegt bardagakerfi.

öll aðstoð er vel þegin og fer inn á ”sérstakar þakkir fá:" síðu.

bj0rn - …