Nexus hefur ekki haldið spunaspilamót í langan tíma. Það hefur verið reynt að þrýsta á þá en þetta virðist vera nokkuð glatað. Það sem mér mundi finnast sniðugt er að reyna að byrja á því að skrá niður spilara sem langar til þess að skunda á eitt slíkt mót. Fá nick, e-mail og staðsetningu á landinu og gera kanski einn stóran póstlista þar sem þeir skráðu geta talað saman. Síðan þegar það eru komnir nógu margir þá er hægt að hefja mót. Það er ekkert vandamál að fá tilboð hjá Cocacola og einhverjum pizza stað. Við gætum jafnvel fengið einn svona pizza stað til að styrkja okkur í staðin fyrir auglýsingar sem við mundum hafa á mótstað. Ég gæti víst haft einhver sambönd í gegnum skólafélagið í skólanum mínum sem eru búin að gera svona oft. Reyndar ekki spilamót heldur tölvumót en þetta virkar svipað. Við þurfum sal og eitthvað til þess að éta á jappla á á meðan við spilum. Hvernig væir að byrja á því að safna saman fólki?