ég var að stjórna hóp í Earthdawn um daginn og tveir félagar mínir sem eru báðir reyndir spilarar fóru alveg á kostum. Þeir höfðu komist á snoðir um það að gömul bardagahetja og núverandi háttsettur ráðgjafi ýmissa stórmenna í ákveðinni borg væri í raun ekki lengu hann sjálfur heldur hafði sérlega illur Horror (Earthdawn spilarar vita að horrorar eru aðal ofur-vondu-skrímslin frá Astral plaine) tekið sér bólfestu í líkama hans og væri um það bil að fara að klára mikinn galdraseið sem mundi hafa hræðliegar afleiðingar fyrir allt konungsríkið, þeir gátu samt ekki sannað neitt og þar sem gamla hetjan naut mikillar virðingar vildu fáir í valdastöðum trúa PC-unum. Þeir höfðu upp á gömlu hetjunni/horrornum og fóru að spurja hann ýmissa spurninga til að reyna að komast að því fyrir víst hvort hann væri hann sjálfur eða hvort hann væri “andsetinn” af Horror. Þegar þeir töldu sig orðna alveg vissa um að þarna væri Horror á ferð, og það sem meira var Horrorinn vissi að þeir vissu, tóku þeir þá ákvörðun að annar þeirra færi og segði mikilvægu fólki frá þessu öllu saman og hinn mundi bíða þarna og “passa” horrorinn. Nú má taka það fram að Horrorar þrífast á þjáningu annara og eru hreinlega mjög lúmskir og illir og þar að auki ótrúlega öflugir bæði á galdra sviðinu og líkamlega bardaga sviðinu, þessu má líkja við að einn PC sé látinn passa MJÖG illan dreka!!

ég er ekki þannig stjórnandi að ég hafi gaman af því að drepa PC-ana en þetta var svo ótrúlega heimskulegt að hann átti það skilið. Characterinn fékk þarna fljótan en afskaplega kvalafullan dauðdaga.

Vegna þess að Horrorin var vel máli farinn og var í líkama manns sem naut mikillar virðingar, gerðu þeir sér ekki almennilega grein fyrir því hversu öflugt og hræðilegt skrímsli var þarna áferð!!!

ég hélt ég myndi líka hljóta fljótan og kvalafullan dauðdaga úr hlátri!!!!