Hvað margir hérna hafa upplifað það að einn spilari drepur annan?
Fyrir nokkrum árum var ég að GM-a Aski. Ég var með mjög flottan hóp af fólki sem virkilega tókst að roleplaya og lifa sig inn í spilið. Ein persónu var kvk Flugumaður (assassin) sem var kvennremba frá helvíti, stoltari en allt og lét engan komast upp með neitt múður. Þessi persóna var mjög hröð. Síðan var það stóri stríðsmaðurinn sem var karlremba frá helvíti og vildi að allar konur ættu að vera hlekkjaðar við hlóðin heima. Hann var hægur en sterkur. Playerarnir lifðu sig mikið inn í þessi hlutverk og auðvita endaði þetta ekki vel. Þetta byrjaði með einhverju karlrembulegu athugasemd frá stríðsmanninum og síðan byrjaði rifrildi. Flugumaðurinn réðst móðguð til atlögu, náði þrem höggum en lélegum höggum og náði ekki að komast í gegnum brynjuna. Þá loksins átti hægi stríðskappinn að gera og hann hitti hana, critical hitt. Sverðið skar hana niður frá öxl að nafla. Þarna þurfti ég að skera á þráðinn útaf vondum mórali.
Ef einhverjir aðrir hafa svona sögur endilega komið með þær.