Ákvað að setja saman smá lista fyrir þá sem hafa ekki farið á mót og vita ekki alveg hvernig maður ber sig að. Það er nefnilega svolítið af hlutum sem maður gerir ekki, eða reynir að komast hjá þegar maður mætir á mót.

10. Ekki slefa á character sheet þeirra sem spila á sama borði og þú.
Það er reyndar ekki vel liðið heldur að slefa á sheet þeirra sem spila á öðrum borðum.

9. Ekki borða rúgbrauð eða annan gaslosandi mat fyrir spilun eða á meðan spilun stendur.
Guð minn góður, ég hef lent á borði með einstaklingi sem rak við allann helv… tímann og ég var að verða geðveikur.

8. Ekki grýta teningum í meðspilara þína eða DM þegar eitthvað mistekst hjá þér.
Þarfnast þetta útskýringar?

7. Ekki mæta spila geðveikt samkynhneigðan character og vera sífellt að bjóða hinum persónunum að sofa hjá henni/honum.
Ekki svo að skilja ég hafi eitthvað á móti samkynhneigðum, heldur er þetta svona princip mál.

6. Ekki spila kynsveltan munk.
Enn og aftur, ég hef lent í grúppu á móti þar sem einn spilarinn, sem var frekar ógeðfelldur, spilaði frekar ógeðfelldan kynsveltan munk…ég ætla ekki að fara neitt nánar út þær umræður sem voru á borðinu á meðan hann hvarf á klósett eða út í sjoppu.

5. Ekki tala við teningana þína.
Slíkt skilar engu, þú lítur bara heimskulega út.

4. Ekki reyna múta neinum.
Að múta stjórnanda er frekar lame, að múta samspilara er enn meira lame.

3. Ekki fara gráta ef persónan þín deyr.
Einhverra hluta vegna virðast sumir taka það mjög nærri sér þegar persónur þeirra deyja. Ef þú hefur þörf fyrir að grenja yfir því, farðu út eða inn á klósett og taktu það út þar.

2. Ekki borða character sheetið þitt.
Það er fátt jafn ömurlega glatað og einstaklingar sem eru sífellt að narta í character sheetið sitt, eða éta það í heilu lagi vegna þess að persónan dó eða gerði einhver heimskupör.

1. ALLS EKKI, ekki undir neinum kringumstæðum, mæta á mót ef þú hefur ekki stjórn á hægðum þínum eða þvagláti.
Það vill enginn sitja við hliðina á manni sem skítur í sig eða mígur á sig af spenningi.



Ef ekkert af ofantöldu á við um þig, ertu velkomin/-n á öll mót. Ef eitthvað á við um þig, viltu þá ekki bara halda áfram að hanga í Counter-Strike og láta okkur non-CS-nördana vera (af því að vera spunaspils-nörd er meira kúl!)!