Eitt sinn sem oftar spilaði ég með nokkrum kunningjum eitthvað sem því miður varð one shot ævintýri. Kerfið var GURPS og við spiluðum í villta vestrinu á tímabilinu rétt eftir þrælastríðið ef ég man rétt og notuðum auðvitað GURPS Old West heimsbókina.

Ég man ekki hvort við vorum 4 eða 5 með stjórnandanum en hinir spilararnir lögðu sig fram við að búa til svona points-optimized combat maskínur. Einn bjó til gaur sem var ekkert annað en byssustatíf… Lýsingin var: sköllóttur, nakinn fyrir utan gallastuttbuxur, skotfæra- og byssubelti. Svo var hann með tvær skammbyssur sem hann beitti með ambidexterity. Minnir að aðrir advantages hafi verið combat reflexes, high pain threshold og toughness.

Sjálfur ákvað ég að búa til persónu úr bíómynd, Tuco eða ugly úr The Good, the Bad and the Ugly. Lítið og ljótt mexíkana skoffín búið skítlegu eðli og fégræðgi. Ég lagði mig fram við að búa hann til nákvæmlega eins og ég sá hann í myndinni fyrir 150 punkta og endaði með að fá að lækka punktatöluna til að geta fjölgað disadvantages sem hann hafði án þess að græða í raun á því.

Í spileríinu lenda menn auðvitað í bardaga. Auðvitað tókst snillingunum félögum mínum að lenda í bardaga við heila riddaraliðssveit. Á endanum lágu þeir á gólfinu á bjálkakofa í útjaðri þorpsins sem við vorum í á meðan að tveimur gatling vélbyssum sem héldu uppi stöðugri skothríð var beint að kofanum.

Eitthvað varð undirritaður að gera til að bjarga deginum… Fyrst var laumast (ég lét ekki króa mig af eins og hinir!) á krá bæjarins en önnur vélbyssan var þar uppi á þaki. Augljóslega var frontal assault ekki málið. Þessi mexíkanadjöfull náði sér í fötu og barði uppá öskrandi að það væri kviknað í. Þegar það var svarað smellti hann fötunni yfir hausinn á viðkomandi (barþjónninn) og lamdi svo fast. Svo var laumast aftan að vélbyssumönnunum og þeir látnir gefast upp og vélbyssan skemmd með frumlegum og fáfræðilegum aðferðum.

Þar með kom tækifæri til að komast að hinni vélbyssunni, skyttan látin gefast upp og skammbyssan tekin af honum og vélbyssan gerð óvirk. Þar sem ég hafði fengið skammbyssuna hans hoppaði ég upp á hestinn minn skaut hann með sinni eigin byssu bara afþví að ég var skíthæll og reið á brott.

Tvö vélbyssuhreiður sigruð, einn bareigandi rotaður, nokkrum vitlausum PCs bjargað, einu skoti hleypt af…

Mikið gerði ég grín af þessum gaukum.