Ég rakst á skemmtilegt spunaspil á IRCinu, n.t.t. Undernet. Þetta spil heitir Akeran og gengur útá að ná völdum og áhrifum og komast í mjúkinn hjá guðinum sínum (góður eða illur guð). Maður byrjar á því að velja sér stað í Akeranlandinu (Arctic, Desert, Forest, Mountains, Plains) til að reisa fyrstu borgina sína og af hvaða kynþætti maður vill vera (Human, Elf, Dwarf, Nomad, Draconian). Síðan á maður að reisa byggingar í borginni sinni og byggja að svo nýjar eða yfirtaka borgir annarra spilara. Stórsniðugur leikur.

Kíkið á #akeran á Undernet ef þið hafið áhuga (þið verðið að nota DCC chat við Akeran bottinn til að senda skipanir, annars er hætta á að hann detti út ef þið sendið skipanir beint inná rás).

Ef einhver hefur prófað að spila þennan leik þá langar mig endilega að heyra hvað honum finnst.