Jæja þá er vonandi komið að því;)

Ég ásamt honum Steina aka.The Stone aka.Steinerinn erum að fara
leggja uppí langferð sem kemur vonandi til með að enda með 1 tölublaði Fáfnis ´04 í sölu í Nexus ásamt öðrum verslunum seinni partinn í sumar!

Það sem að mig vantar er ykkar stuðningur!

Ef að þið eruð með einhverjar smásögur (helst á Íslensku)
DM tips,teikningar og nánast bara hvað sem er svo lengi sem að
það tengist RPG þá endilega mailið því á fafnir@dragonlance.zzn.com
og við förum yfir það og látum vita ef það verður sett á prent.

Einnig verða þarna smáauglýsinga dálkar sem hægt verður að selja gamlar og eða nýar bækur sem og að óska eftir þeim.Einnig verður hægt að auglýsa eftir spilurum og stjórnendum.(það verður hægt að auglýsa gegn vægu gjaldi:) auglýst síðar).

Það verða einnig viðtöl við spilara og stjórnendur.
Umfjallanir á væntanlegum d20 vörum/tölvuleikjum/comic blöðum, osf.
Og svo miklu miklu meira……………..

En eins og ég seigi þá er þetta allt í pípunum.
Og til að þetta geti gengið þá þarf að vera eitthvað efni svo ekki vera hrædd við að senda inn.

Drekinn hefur fengið sinn svefn.Það er komin tími til að vekja´n!
Ósnotur maður