Jæja, fundurinn var í gær og mæting var nú bara betri en ég átti von á :) Um 12-13 manns komu og tóku þátt í umræðum.

Það sem gerðist var að stjórn var sett saman til að standa að undirbúningi fyrir þetta spilafélag og til að ræða hugmyndir um spilamót og fleira.

Þeir sem eru í stjórn eru;
Ívar Gunnarsson (Vargur)
Jóhann Albertsson (Azrael)
Ingimundur Níelsson
Kári Gunnarsson
Guðmundur Freyr Matthíasson

Ætlunin er nú að þessir kappar hittist í næstu viku og setji eitthvað almennilegt á blað.

so stay tuned….
hux|AzRaeL