Er þetta áhugamál officialy dautt? Ég ákvað fyrir u.þ.b 4 dögum að senda inn tvær greinar hingað inn bara svona til að athuga hver stemmingin væri. Mér dettur aðeins tvær ástæður í hug afhverju þær hafa ekki verið birtar :

1) Admin-gaurnum líkaði eki greinarnar mínar (þeir voru allaveganna ekki að neinu leiti ósiðlegar eða óviðeigandi)

2) Admin-gaurinn er ekkert að sinna sínu starfi og pælir ekkert í þessu áhugamáli lengur.

…Ég býst við því að það seinna sé rétt vegna þess að aðeins tvær greinar hafa verið sendar inn í þessum mánuði (sem mér finnst óeðlilega lítið fyrir vef sem þennann) og mig langaði að vita hvert væri hægt að snúa sér til að bæta við admin fólki því að mér finnst ekki nóg að vera bara með einn gaur sem lætur hvorki sjá sig né birtir innsendar greinar, sem leiðir bara til þess að áhugamálið deyr og allir hætta að koma.

Kveðja

Binni