Ég var að velta því fyrir mér hvers vegna eru ekki tveir aðskildir korkar, einn um Buffy og annar um Angel ?
Þó svo að ég horfi bæði á Buffy og Angel þá finnst mér nú orðið meira varið í Angel þættina og hef þar af leiðandi mun meiri áhuga að lesa um þá. En hins vegar nenni ég ekki að fletta kannski öllum greinunum á korknum til að finna eitthvað um Angel þar sem titlar korkana gefa oft ekki nóg til kynna um hvaða seríu er verið að tala um.

Kveðja
Lancelot