Held þetta myndi örugglega falla undir þetta áhugamál. Eru að byrja sýna þessa þætti á RÚV. Byrja í kvöld um 23.
http://www.youtube.com/watch?v=tYN_lu0hFSI

Mæli með þeim, byggjast á bókunum Sword of Truth, en þeir sem hafa lesið bækurnar þá er ekki verið að endurgera bækurnar yfir í mynd heldur einfaldlega karaktenum haldið og sköpuð ný saga. Terry Goodkind sá m.a um handritið.

Gaman að segja frá því að nokkrum mánuðum áður sendi ég RÚV bréf þar sem ég freistaði gæfunnar og mælti með þessum þáttum, fékk ekkert svar. veit ekkert með hvort þetta hafi eitthvað með það að gera, en bara prufa og sendið RÚV tölvupóst að mæla með þáttum.
————–