Þið sem horfðuð á lokaþáttinn af Cold Case í gærkvöldi, hvernig fannt ykkur hann? Mér fannst hann rosa spennandi, en skildi samt ekki alveg endann þegar Lilly var að yfirheyra þennan Moe og vatnið kom þarna (ég vissi hún var hún að ímynda sér það, hélt að hún væri bara ennþá með sjokk eftir þetta), svo var hún komin í vatnið aftur og e-r voru að bjargar henni! Ég fattaði ekki baun fyrst, en það hlýtur að vera að gefa í skyn að hún hafi bara ímyndað sér allt sem gerðist í þættinum og hún var aldrei komin úr vatninu, það er eina skýringin! Samt fundu hinir sem betur fer út hverjir voru þeir seku og Lilly fór á spítala. Ég er fegin að hann endaði allavega vel, þó þetta hafi veirð pínu ruglandi þarna.

Mér brá svo hrikalega þegar einhver skrifaði á youtube að það kæmi ekki 7.sería, ég var ekki ánægð með það, en svo sá ég staðfestingu frá CBS á heimasíðu þeirra að 7.sería byrjar í septmber í USA svo ég varð glöð aftur :D