Að sjá að Locke var dáinn allan tímann var annað mesta WTF moment sem ég hef upplifað í þessum þáttum en ég er mjög pirraður yfir því hvernig höfundarnir fóru með persónuna.
Í seríum 1 - 4 var hann rosalega mysterious, tengdist eyjunni, varð leiðtogi Others og allt. Síðan komumst við að því í fimmtu seríu að hann var aldrei sérstakur heldur var þetta einhver vítahringur, Jack og Locke sannfærðu fortíðar Richard um að Locke væri sérstakur. Þar að auki var Locke bara peð sem Anti-Jacob notaði til að drepa Jacob.

Terry O'Quinn á víst að halda áfram að leika þessa nýju persónu sem tók á sig mynd Locke en þessi sería er algjörlega búin að skemma heildarmyndina af Locke. Ein uppáhalds sjónvarpspersónan mín fékk hrikalegan endi. Ég er fúll.