Ég get ekki setið á mér lengur - ég verð að spyrja ykkur eftirfarandi spurninga:

1. Eru allir að fíla Buffy/Spike sambandið? Hvað er svona merkilegt við þennan gæja? Af hverju finnst mér allir vera ástfangnir af honum og af hverju er ég ekki með í þeim hópi?

2. Hvað í ósköpunum hefur fólk á móti Anyu? Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun hér á huga var hún óvinsælasta persónan næst á eftir Riley (sem er nokkuð skiljanlegt val). Mér finnst hún æðisleg!

Í guðanna bænum gefið mér einhver svör því ég er hætt að skilja.
<br><br>—————–
*Evil things have plans. They have things to do!*
——————