Hæ ég var að horfa á fyrsta þáttinn í seríu fimm rétt áðan.

Rosalega góður þáttur fannst mér en ég er sko alls ekki sátt með að Susan og Mike séu hætt saman!! Þau eru bara meant to be!! Mér finnst að þau eigi að byrja aftur saman.
Ég hélt fyrst að Mike væri dáinn þegar þau lentu í bílslysinu :S En svo sorglegt að mæðgurnar í hinum bílnum dóu :S
Ég þoli ekki þennan nýja gaur sem Susan er með núna.. :S
En strákurinn þeirra (Susan og Mikes) er algjört krútt :D

Svo finnst mér rosalega spes að sjá Gabrielle svona mömmulega og svona. Málar sig ekkert og er búin að bæta á sig nokkrum kílóum. Samt alltaf jafn falleg :)

Algjör snilld með tvíburana hennar Lynette og Tom! Það verður rosalega gaman að fylgjast með þeim :D Svo eru þeir líka algjörir töffarar sko haha :D

Og, æji ég vorkenni Bree svolítið að Danielle hafi bara komið allt í einu og tekið strákinn af henni :S

Og, tja Edie.. sýnist hún vera í erfiðleikum við að vera ekki tík! Og þessi kall sem hún er með, leist ágætlega á hann fyrst en svo í endanum á þættinum þegar hann var að tala við læknirinn, greinilega með einhver ofsareiði vandamál eða eitthvað þannig :S


Hvernig fannst ykkur sem eruð búin að sjá fyrsta þáttinn í seríu 5 þátturinn? :D
We were swimming in the ocean