Vá, ég hef aldrei verið svona spennt áður eftir Bones þætti! Þó mér finnist þeir skemmtieglir og spennandi, en hann hefur aldrei endað svona, að Booth var skotinn af einhverri klikkaðri konu sem var heltekin af honum! Ég held reyndar að hún hafi ætlað að skjóta Bones, ef mér skjátlast ekki.
Hehe, en það var geðveikt fyndið þegar Zack söng og Bones líka, þau syngja bara rosa vel, ef ég má segja mína skoðun;) Ætli Emily Deschanel (Bones) og Eric Millegan (Zack) séu söngvarar í alvöru….?

En það sást alveg hvcað Booth er hrifinn af Bones, ekki bara sem félaga, en ég vona að það verði allt í lagi með hann:)
Eins gott að þetta var ekki lokaþátturinn, og eins gott að lokaþátturinn er ekki þarnæsta fimmtudag (17.júlí), því þá verð ég í sumarbústað í Úthlíð með enga Stöð 2…:( En lokaþátturinn er næsta fimmtudag, svo ég bíð spennt eftir honum!!