SPOILER EKKI KÍJKA EF ÞÚ VILT EKKI VITA HVAÐ GERIST!!

Eins og sumir vita sem horfðu á þáttinn á undan að þá var fellibylur og þeir sem hafa séð næsta þátt á eftir vita hvað gerðist og ég grét af einu haha.
Hann byrjar svoleiðis um kvöld að allir í götunni og fleiri bíða og horfa á húsið sem Karen McClusky býr í og lynette horfir grátandi á og bíður eftir að slökkvuliðsmennirnir finna fjölskyldu hennar og Idu og þetta er mjög dramatískt og svo allt í einu kemur fyrst nær slökkviliðsmaðurinn í yngstu dóttur hennar og lætur lynette fá hana og svo hleypur Parker til hennar svo tvíburarnir og kayla. ( voða sérstakt að kayla kallaði hana mömmu en voða krúttlegt) og Tom en Ida dó(besta vinkona karen McClusky greyið). Seinna í þáttinum kemst maður að því að hún bjargaði fjölskyldu Lynette.
VanDeCamp fjölskyldan byrjar að búa hjá Susan því húsið þeirra vantar þak og svo er Mike í Rehab. Maður Katherine fer burt vegna þess að hann hélt framhjá henni og svo seinna fann hann miða frænkunnar sem stóð hvað gerðist fyrir Dylan og í enda þáttarins lætur katherine miðann brenna og fer og þá kemur dylan og tekur miðana og setur þá saman í enda þáttarins og hún er alveg í sjokki maður en maður kemst ekki að því hvað gerðist.
Gabrielle fer í jarðarför Victors og pabbi hans segir við hana að hún fái ekki neitt úr peningnum hans og það var alltaf þannig að hann sjálur átti að fá hann og 9 milljónirnar í síðasta þætti fóru í vindinn þannig þau eru í peningalaus. Seinna í þættinum eða eigilega í endanum gerist það og þetta brá svo mikið :( og grét.
þvi
carlos er á spítala eftir að hafa rotast en það er ekki það en nefnilega er hann BLINDUR sniff…
en er ekki enn búinn að segja gabriella því er bara með gifs um augun vegna meiðsla en hann þorir ekki að segja henni því hann heldur að hún fari frá honum því hann er blindur.

þetta er það sem ég man úr þáttinum enjoy!!
commenta:D

ég veit það eru stafsetningavillur en vá þið lesið þetta ef ykkur langar.
(-_-)