Þátturinn Drive sem virtist hafa möguleika á að verða frábær sería var tekin af dagskrá Fox rásarinar eftir einungis 4 þætti. Ekki er vitað hvort að restin verði sýnd sem eru 9 þættir en hugsanlegt að það verði bara í gegnum streams eða itunes download.

Persónulega finnst mér þetta hörmulegar fréttir þar sem þessir þættir eru mjög góðir og eru með hinum frábæra Nathan Fillon í aðalhlutverki sem fyrst náði athygli minni úr síðasta season'i buffy the vampire slayer og svo úr hinum frábæru sci-fi þáttum Firefly. Þættirnir áttu góða möguleika fannst mér, þótt þetta væri ekki sambærilegt við lost eða heroes þá er hugmyndin á bakvið þá alveg frábær.