Jæja, þá er Prison break komið í gang.

Þessi þáttur var að mínu mati geðveikt góður, stóðst alveg mínar væntingar og meira en það. Dr. Tancredi er lifandi, sem mér finnst vera gott mál =)

Scofield með allt planað, t.d. fötin sem voru grafin og það. Aumingja T-Bag þó, haha, fór til dýralæknis til að sauma á sér hendina aftur ^^ Verst að við sáum ekkert af Tweener og Haywire =/

Shit maður, ég var að skíta í mig þegar þeir hittu hunterinn og stelpuna. En Abruzzi reddaði því. Tja, svo er það þessi nýi Manhunter gæinn þarna. Sá gaur er KLÁR maður, fattaði allt sem Scofield var búinn að plana næstum :o

Svo er það hún Veronica, sem festist inní húsinu. Svo hringdi hún í lögguna, en það voru einhverjir vinir forsetans sem komu og DRÁPU HANA :|||| og hún var að tala við Link á meðan!!! :| Djöfull var ég leiður og FKN REIÐUR útí þetta “Company” sem er að setja þetta allt upp :/ oooog hann Terence er bara þarna í lokuðu húsi, sem ekkert er hægt að flýja.

Vá, þessi þáttur var æðislegur. Spennandi, fjörugur, skemmtilegur og sorglegur.

9/10 er einkunin mín. Endilega komið með álit =)