Þetta er mögulegur Spoiler fyrir þá sem hafa ekki horft á þetta frá upphafi…

…og ég verð að segja að þetta eru mikil vonbrigði. Þetta var einn af mínum uppáhaldsþáttum á sínum tíma og því hef ég beðið spenntur eftir því að sjá hvernig framleiðendurnir ætluðu að vinna úr þessu rugli sem lokaþátturinn í 2.seríu bauð uppá!!

Kannski er ég bara ennþá fúll yfir því að Kate hafi verið skotin burt úr þáttunum, en æ…ég veit ekki, það vantar einfaldlega þennan sjarma sem var yfir öllu…þessir litlu fimmaurabrandarar hér og þar, þetta love/hate samband á milli Tony og Kate…ætla að gefa þessu séns næstu 2-3 þætti þar til þetta Katemál allt saman er búið og sjá hvort þeir nái að rífa þetta upp aftur.

En fyrsti þátturinn í nýju seríunni var verulega dapur að mínu mati…