Sá að skjár einn er byrjaður að sína þessa þætti og mæli ég með að allir ættu að kíkja á hann.
Þeir eru um stelpu sem er bjargað úr sjónum eftir að hafa næstum druknað. Byrjar ýmislegt skrítið að gerast í bænum í kringum hana og pabbi hennar ekki sá sama og hún hélt að hann væri.
Þessi þáttur var skapaður af Marti Noxon en hún skrifaði fyrir Buffy á meðan þeir voru. Point Pleasant byrjar soldið hægt og vill maður eiginlega gefast upp eftir fyrstu fimm þættina en ég mæli með að horfa áfram því þeir verða mjög spennandi eftir það og hötum við FOX fyrir að hafa hætt að framleiða þá og ekki gefa þeim séns.