Jæja þá er serían búin, á risa cliffhanger eins og mátti búast.

Rúmarar segja að næsta sería muni heita Man hunt(ing)
Ef það er rétt er nokkuð augljóst að þeir muni einhverneiginn komast úr þessari klípu sem þeir eru í núna. Allavega ef þeir myndu nást og fara aftur í Fox River væri þetta sería 1 all over again..

Svo þá eru það spurningar fyrir sumarið..
Þeir eru að hlaupa á opnum akri, löggurnar sjá þá og eru á eftir þeim, eru á löggubílum og jeppum sem ættu auðveldlega að geta keyrt yfir akurinn.

Til eru margar getgátur, eins og að þetta hafi ekki verið flugvélin sem þeir voru að bíða eftir (Abruzzi talaði um þriggja manna vél)
Svo er akurinn þar sem þeir eru að hlaupa virkilega dimmur og þú sérð ekkert, gæti verið e-ð sem hjálpar þeim að komast undan.. eins og.. hef ekki hugmynd. Gæti jafnvel verið annar klettur þar sem þeir gætu tekið The Fugitve brelluna á
Micheal gæti verið með e-ð varaplan, hann var nokkuð viss í hvaða átt ætti að hlaupa í allavega.
En eina sem mér dettur í hug sem kæmi þeim þaðan væri eitthvað loftfarartæki, örugglega ekki þyrla því þeir gætu aldrei stungið lögguþyrluna af..
Eina sem gæti komið þeim í burtu væri bara önnur flugvél.. en það tekur náttúrlega tíma að starta flugvél.. baahh hvað mun gerast

En bara vá, þetta virðist samt bara vera ómögulegt að komast úr þessu.


Ég er allavega alveg pottþéttur að þeir náist ekki þarna, því enginn myndi nenna að horfa á season 1 all over again, þar sem þeir væru undir mjög hertu eftirliti með engan möguleika á öðrum flótta


Er einhver með tilgátu um hvernig þeir komast útúr þessu klandri?