Jæja, the L Word flokkast víst sem drama series svo þetta ætti að vera rétti flokkurinn fyrir þessa umræðu.

En ég var að spá hvort einhver hérna hafi séð aðra seríuna og jafnvel það sem komið er af þeirri þriðju?

Því miður er ennþá bara búið að sýna þá fyrstu á SkjáEinum. Ekki veit ég hvort hinar verði nokkurn tímann sýndar.

Ég nenni nú varla að fara að spjalla við sjálfa mig hérna og ætla því að bíða hvort ég fái einhver svör frá fólki sem hefur horft eitthvað áfram á þetta, en sjálf hef ég séð allt hingað til og verð að segja að þessir þættir standast allar væntingar hingað til þó önnur serían hafi verið áberandi lélegust af öllum þremur, þó þriðja sé nú ekki búin.

Ég skrifaði einhvern tímann grein um þessa þætti þegar þeir voru að byrja á Íslandi og væri alveg til í að skrifa fleiri greinar þó þættirnir hafi ekki verið sýndir hérlendis, en ég nenni varla að skrifa um eitthvað sem enginn hefur séð! :)