Þegar ég var að horfa á þátt 2 í annari seríu sá ég soldið sem vakti athygli mína.

Þegar Michael og Sawyer voru úti á flekanum kom skot af hákarli að synda. Mér fannst það frekar fyndið þegar ég sá að það var eitthvað sem leit út eins og vörumerki á sporðinum. Síðan þegar ég var að horfa á þetta aftur (eftir að hafa horft á alla þá 9 sem ég á) prófaði ég að setja á pásu og skoða merkið. Þarna brá mér allsvakalega þar sem ég sá að merkið sem var á sporði hákarlsins var mjög líkt Darmha merkinu sem var inní byrginu sem hinn hópurinn fann. Það hafði alveg eins umgjörð (strikin sem mynda hring) og hafði svo eitt þykkt strik í miðjunni.

Ætli þetta sé einhver villa eða eitthvað eða ætli þetta þýði eitthvað í raun og veru?