Jæja, núna er hann kominn, var búinn að gera mér rosalegar væntingar en síðan sá maður ansi lítið gerast í honum, bara rétt mikilvægustu atriðin - En þegar að Kate faðmaði Sawyer að sér og hvíslaði, SÁUÐI HVERNIG JACK VAR!!? Svonaa vandræðalegur og rosalega öfundsjúkur, hann lék þetta frábærlega!!!!!

Við fengum að vita um fortíð Ana-Luciu, sem var ansi skemmtilegt. Reyndar sorglegt að hún var ólétt, kom fram hver var föðurinn?
AL vildi vera eftir í frumskóginum, Why? Hún vildi bara vera alein, vildi fá skot í byssuna.. Sér einhver líkinguna á henni og Danielle??

Sawyer… illa meiddur, sýking í sárið og líklegast kominn með sjúkdóminn (any of you gotten sick?)(The Disease) útaf opna sárinu =(

Þegar Michael fór niður í Hatch og sá Jack - kemur Jack og bara faðmar hann man-hug, ekkert meira sérstakt… Skrýtið!

Í endanum þá var það vægast sagt yndislegt, að sjá Jin og Sun koma aftur saman, svipurinn á Charlie var ómetanlegur og fólk táraðist af Bernard og Rose.. (Ég hef tekið eftir því að eyjan vill ekki að fólk sé lengi hamingjusamt, þori að veðja um að eitthvað gerist við annaðhvort þeirra (Bernard og Rose))..

En annars hef ég lítið að skrifa um þennan þátt, lítið gerðist í honum - en ef þið viljið sjá Previewið á næsta þætti þá getið þið addað mér á MSN - PM me bara því að næsti þáttur verður ÓTRÚLEGUR!!! Miðað við hvað ég sá í Previewinu!! VÁ!!


[Spoilers um 209 aðeins, frá previewinu]





















Mr. Eko horfir á myndina niður í hatchinu með Michael og sagt hefur verið að Mr. Eko viti eitthvað um hatchið sem Locke veit ekki. Kannski það að hann viti hvað var klippt úr myndinni sem var þarna! {Under any circumstances, you may not use the computer to *film skips about a minute* ..}

Jack og Kate KYSSAST!!!!!!!!!!!!!!!! Jate coming true!! (Jack Kate, JATE!) Kate horfir skringilega á Jack eftir kossinn, veit ekki hvað það þýðir..


Tíminn rennur út, á counternum. Locke nær ekki að setja inn tölurnar..

Sendi måske inn mynd af kossinum - Jate!















[Spoiler ended - kork ended =) ]