Hvernig fannst ykkur þegar að Shannon dó, haldið þið að Ana Lucia skaut hana, eða hún var stungin af The Others og Ana Lucia miðaði bara byssuna á hana eða The Others- aðilann?

Sáuð þið svipinn á Sayid þegar hann stóð upp í endanum, badass svipur.. Ready to kick some fu***** ass!.. Vá djöfull væri ég ekki til í að vera í sporum Ana Luciu núna..!!


__
Augun mín stóropnuðust þegar Locke lét barnið steinþaggna. Veit ekki af hverju =)

Og líka Walt, hvað er þetta? Draugur? Walt eftir að hafa hitt The Others (sem að eru líklegast börn) og dáleiddur eða andsetinn. Eða bara zombie (allt frekar far-stretched..). Hvað er Walt í þessum nýju þáttum? Hann segir líka ‘There coming, they are close’ var hann að meina the others eða ana lucia & co


__
Cindy konan sem að hvarf, maður sá eða heyrði engin átök þannig að tilgátan er að hún hafi farið sjálfviljug- eins og Ethan! Hún var sú eina sem mótmælti ekki þegar Ana Lucia sagði að þau þyrftu að fara inn í skóginn “þeirra”, eins og hún vissi af gildru þar og fór síðan þegar eitthvað hafði gerst, veit ekkert hvað.


^Endirinn af þessari litlu “grein” (senti hana Ekki inn sem þannig)^

Endilega engin skítköst af hugsunum mínum og ef þið komið með mótsvör (endilega gerið það) EKKI vera með dónaskap og kalla mig hálfvita fyrir hugmyndir sem standast kannski ekki, klukkan er margt =)


Kv,
Birkir - Lost fan =)

PS. Hvað haldið þið um næsta þátt? Hvað gerðist við hina? Hvað veit Mr. Eko um Hatchið sem hann segir Locke.. *set upp spurningarsvip* =)