Jæja…. Þá var ég að glápa á fyrsta þáttinn af Season 2 af Lost…..

Og ég sver það að það er einhver að fokka í mér. Ég get með fullri alvöru sagt að þessi sería verður ekki síðri.


Í gær horfði ég svo á fyrsta þátt af því sem á að vera svar NBC við Lost sem kallast Surface. Mjög ólíkur þáttur en greinilega ætlaður sama markhópi.

En ég er að fíla trendið sem bæði Lost og Surface hafa. Droppa þessu helvítis title í byrjuninni. Hafa þetta simple. Lost logoið og búið. Enda fáránlegt að hafa einhverjar 2 mínotur í byrjun hvers þáttar undir eithvað lélegt lag og texta sem öllum er sama um við.

En já….. Lost er byrjað og það er frábært.