það eru nokkrir hlutir sem ég var að velta fyrir mér og langaði að fá ykkar álit á.

1. Feita svarta konan sem sat hliðina á Jack í flugvélinni sagðist vita að maðurinn hennar væri á lífi. Ættli það sé bara bull í henni, eða gæti hinn helmingur vélarinnar hafa lent einhverstaðar annarsstaðar?

2. Er Lock búnað missa það? Er áráta hans um eyjuna og leyndarmálið á bakvið “the hach” búnað blinda hann þannig að hann er hættur að hugsa rökrétt? Hann trúði því alltaf að Walt hefði sérstaka hæfileika, en hlustaði ekki á hann þegar hann sagði honum að opna ekki hlerann.

3. Hversvegna er Said sá eini sem að sér það að það hlýtur eitthvað slæmt að vera ofaní þessum hlera? Reyndar vildi feiti ekki opna hlerann, en hann þurfti að sjá tölurnar til að fallast á þá skoðun.

4. Hvaðan kom Ethan?

5. Eru “the others” í raun til? Franska konan sagðist aldrei hafa séð þá, bara heyrt í þeim, en margir aðrir heyrðu raddir í skóginum þrátt fyrir að enginn væri nærri.

6. Voru þetta kanski The others á bátnum?

Þetta eru bara svona hugleiðingar sem ég hef verið að velta fyrir mér og þætti gaman að heyra hvað öðrum finndist.