Ég veit ekki hvort hún var nokkurn tímann ráðin sem Cordelia - ég held að hún hafi upphaflega sóst eftir því hlutverki og Charisma Carpenter sóst eftir Buffy hlutverkinu. Síðan var víst ákveðið að þetta myndi passa betur svona.
Julie Benz sóttist líka eftir Buffy en fékk ekki og Danny Strong (Jonathon) sóttist eftir Xander hlutverkinu. Ég held að Mercedes McNab (Harmony) hafi líka verið að eltast við Buffy. Svo las ég einhvern tímann að framleiðendurnir hefðu beðið Katie Holmes um að leika Buffy en hún afþakkaði þvi hún vildi frekar taka þátt í einhverjum söngleik í skólanum sínum. Er ekki alveg viss um hversu mikið er til í því.<br><br>
—————–
*Do I deconstruct your segues?*