Þegar ég sá þetta auglýst í sjónvarpsvísinum þá fannst mér þetta spennandi og ákvað að horfa á hvern einasta þátt.En þá sá ég þetta auglýst í sjónvarpinu á rúv og hætti ég við að horfa á þetta. Ég sá ekkert af þessu í eitthverja 5 þætti, en þegar ég sá þetta inni á þessu áhugamáli þá fannst mér það vera spennandi hvernig það var verið að lýsa þessu. Ég áætlaði mér að horfa á þetta en ég missti alltaf af því. Ég hef haft annað augað með þessu síðastliðna 2 þætti en ég hef ekki grun um hvað er að gerast. Þess vegna vildi ég biðja ykkur um að koma með svör fyrir mig.

Þegar ég sá í fyrra skiptið þá var þarna feiti gaurinn að telja númer upp fyrir frönsku konuna. Hver var konan?

Var maðurinn sem átti flugvélina dópinnflytjandi eða var þetta eitthver mistök?

Er svarthærða konan í sambandi við gaurinn sem fékk gleraugun í síðasta þætti?

Eins og þið sjáið þá veit ég ekki hvað þau heita en þar sem ég er er loksins farin að hafa tíma fyrir að horfa á þessa þætti vil ég vita þessa þætti. Hinum spuriningum mínum hefur verið svarað!
Lastu Þetta?..