Ég keypti um daginn Ultraviolet á DVD. Þetta eru breskir þættir um vampírur. Fjalla um ransóknarlögrelgu mann sem kemst að tilvíst þeirra fyrir tilviljun. Vil ekki gefa upp mikið meira til að skemma ekki söguþráðinn. En þetta eru 6 þættir í allt. Ég veit ekki hvort að þeir geri fleiri þætti. Þetta eru vandaðir þættir og mjög spennandi. Vampírunrnar hafa ekki vampíur andlit og drepa ekki fórnalömb sín heldur drekka nægju sína, kemur ekkert far eftir þær og fórnalambið man ekki eftir atburðinum. Stórkostleg skemmtun fyrir þá sem hafa áhuga á vampírum.