Nú er til sérstakt áhugamál fyrir sápur sem kannski var upphafleg hugsað fyrir dagsápurnar (á borð við Nágranna) en hefur þjónustað þætti á borð bið One tree hill og The O.C. (er meira að segja með sér korka fyrir hvorn þátt.) Mér finnst það hið besta mál og er að spá í færa alla umfjöllun um sápulega þættina þangað. Þessir tveir eru nokkuð augljósir en það eru aðrir sem vega soldið salt á milli drama og sápu og spurning hvar þeir eiga best heima. Þetta er mín tillaga að skilgreiningu - endilega látið mig vita ef þið eruð með athugasemdir:

Sápa
One tree hill
The O.C.
The Mountain
Footballers wives

Drama
Desperate housewives (reyndar mikil sápa en spennuelementið á sennilega best heima hér)
Gilmore girls
The L word
Nip/tuck

Spurning með þætti á borð við Ed eða Everwood. Ég hef aldrei horft á þá.
——————