Þetta á ekkert að vera neitt meistaraverk þessi grein ;) Vil einfaldlega benda öllum sem að hafa látið þættina 24 á stöð 2 fram hjá sér fara, á það að þeir eru að missa af miklu!
Ég byrjaði að horfa á þessa þætti á spólu heima hjá vinkonu minni, bara af forvitni, hafði heyrt mikið um þá og að þættirnir hefðu verið að fá verðlaun og annað.-Og ég gjörsamlega festist! Þetta er alveg frábært sjónvarpsefni, spennan dettur ekki niður eina mínútu! Auk þess sem handritið er frábærlega skrifað og að allir aðalleikararnir skila sínu og vel það!

Vildi bara benda á það, þetta eru einir alla bestu þættir sem ég hef séð!
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'