Nú þegar Buffy Season 2 er að koma á DVD var ég að spá hvort að það væri ekki málið að leigja einhvern lítinn sal með sófum, setja upp myndvarpa og gott hljóðkerfi og halda BTVS maraþon eina nóttina?

Nú spyrja sumir afhverju ekki að horfa á Angel líka, ástæða þess er að Angel syrpan byrjar ekki fyrr en í 4 syrpu af BTVS þannig að Angel gæti sýnt spoilera fyrir þá sem ekki hafa séð hingað til.

Ég myndi segja þetta alveg brill, svona alvöru “Scoobie Gang” að hittast, glápa og spjalla um þetta :)

Kveðja
Dobbi<br><br>“I´d rather be a plumber”
–Albert Einstein
“Forget the Tribe, My Pants Have Spoken!”