Það eru margir búnir að vera duglegir við að segja að Buffy eigi ekki heima hérna sem áhugamál. Svo virðist vera að það fari fyrir brjóstið á þeim að sjá það hérna á Huga.
Buffy er ein af þessum sjónvarpsseríum sem höfða til ákveðins hóps af fólki, venjulega þeim sem hafa gaman af Fantasy, Sci-Fi og Role Playing almennt. Það sem mér finnst einna skemmtilegast við Buffy eru skírskotin (venjulega 1-2 í hverjum þætti) til annarra þátta/sjónvarpssería en Star Trek, B5 og X-Files hafa verið tekin skemmtilega fyrir í þeim geira. Einnig lyfta þeir kaldhæðni upp á nýtt sjónarsvið og eru mjög sambærilegir við breskt sjónvarpsefni hvað það varðar.

kv
Halldó