Jæja þá er búið að breyta Buffy / Angel áhugamálinu í spennuþætti og er margt að skoða og breyta í því sambandi. Það verða eflaust settir upp korkar hérna fyrir þessa vinsælustu spennuþætti sem eru til en þangað til verður bara að nota “Allt um Buffy” korkinn.
Ég ætla að reyna að vera stjórnandi áfram á þessu áhugamáli ef meistari JReykdal leyfir og mun ég reyna að sjá vel um ykkur spennufíkla.

Við núverandi stjórnendur förum líklega í það að breyta áhugamálinu og færa til Buffy / Angel upplýsingarnar í 1 “kubb” svo að við getum bætt inn fleiri “kubbum” fyrir marga af þessum þáttum. En endilega teljið upp þá þætti sem ykkur finnst að ættu að vera með korka , þegar eru komnar tillögur að 24 og The shield.