Það hefur talsvert komið inn af könnunum þar sem fólk er að spyrja “viltu að Buffy haldi áfram?” - “eiga að koma fleiri seríur?” - “munu koma fleiri seríur?” o.s.frv.

Í eitt skipti fyrir öll: Buffy er hætt. Það voru gerðar alls 7. seríur og það verða ekki gerðar fleiri. A.m.k. ekki næstu árin. Auðvitað vilja allir sjá þættina halda áfram en það mun einfaldlega ekki gerast og frekar tilgangslaust að velta sér upp úr því.

Á hinn bóginn má auðvitað spyrja um áframhald þáttanna á Stöð 2. Þar hafa aðeins 5. seríur verið sýndar og spurning hvort og hvenær þættirnir halda áfram. Líklegt er þó að 6. serían taki við af Dark Angel þegar þeir þættir hætta.<br><br>—————–
*Evil things have plans. They have things to do!*
——————