Sælir kæru aðdáendur.

Veit nú varla hvort það sé hægt að segja að þetta sé grein en mér fannst ég þurfa að tjá aðdáendum Buffy: The Vampire Slayer að 7. season sé komið á videoleigur á borð við Nexus og Laugarás video frá og með síðasta þriðjudegi ( ef ég man rétt ). Reyndar ætla ég að vara við að aðdáendur hringa inn í byrjun dagsins til þess að næla sér í fyrstu spólurnar og erfitt er að ná sér í þessi fáu eintök. Auk þess ætla ég að tjá þeim sem hafa leigt þætti í fortíðinni á Nexus og hafa jafnvel verið bíðandi eftir þessum þáttum í töluverðan tíma eins og ég hef gert að Nexus hefur tekið þá heimskulegu ákvörðun að loka búðinni klukkan 8. Ekki þægilegast ef manni langar til þess að leigja spólur á kvöldin.

Auðvita eru allir sem hafa hort á 6. season mjög spenntir að sjá hvernig Willow og Spike verða í komandi þáttum.