Ég var nú að klára nýjasta þáttinn, Dirty Girls. Ég verð bara að segja að ég nenni ekki að horfa á fleiri. Ég sem mikill aðdáandi Buffy, hef horft á alla þættina a.m.k tvisvar og eyði of miklum tíma á netinu í að leita að efni henni tengt, hélt að það myndi aldrei koma að þessu. En mér finnst Joss Whedon og ´hinir sem sjá um þessa þætti vera bara á rangri leið. Mér finnst þetta hundleiðinlegt efni. Allir þættir eru eins, Buffy er megatík! Eini bjarti punkturinn er Faith! Fyrirgefið allir sem finnst þetta skemmtilegt season, en mig langar bara að vita hvort að það séu fleiri sama álits.