Ég er frekar ný í þessu Buffy áhugamáli, er rétt nýbyrjuð að fylgjast eitthvað með því, rétt náði í rassgatið á síðustu seríu á stöð2. Svo gæti einhver sem veit meira um þetta útskýrt fyrir mér söguna og hver þessi Angel er??? Ég veit að hann er einhver gaur sem dó eða e-ð þannig en það er mest pirrandi að vera að fylgjast með einhverju og skilja svona lítið í því. Og hvernig endaði Spike eiginlega í baðkerinu hjá Buffy? og hvernig komst hann úr því? Takk, takk.
“Against boredom, the gods themselves struggle in vain.” — Nietzsche