Ok - þið sem hafið séð þáttinn hafið væntanlega tekið eftir því að rödd Buffyar þegar hún talar við Willow í huganum er ekki rödd Söruh. A.m.k. ekki í útgáfunni sem hægt er að finna núna á netinu. Hins vegar fer víst ekki á milli mála að í útsendingunni í sjónvarpi *var* þetta rétta röddin. Þ.e. svo virðist sem tvær útgáfur séu til af þættinum. Sennilega var vitlaus útgáfa send fyrst með gervihnetti þar sem vantaði réttu röddina en rétt útgáfa farið í útsendingu. Vildi bara benda þeim á sem koma til með að furða sig á þessu að þetta virðast vera einföld mistök og ekkert annað.<br><br>—————–
*Evil things have plans. They have things to do!*
——————