Halló sæta fólk :)

ég var að pæla í sambandi við Dawn í 5. seríu, þá er talað um að það séu vísbendingar í fyrri seríum um komu hennar. ég hef spottað tvær vísbendingar í 4. seríu en ég hef lesið að það séu vísbendingar líka í 3. seríu? vitiði hvar það kemur fram?

4. sería hefur gefið mér þessar vísbendingar:
[4x15 - This year's girl] Í draum Faiths eru Buffy og Faith að búa um rúm og tala um að litla systir sé að koma.
[4x22 - Restless] í draumi Buffys segir Tara henni að koma aftur “before Dawn”, sem er nú auðvelt að túlka sem vísbendingu.

en hvað með 3. seríu??? ég hef ekki spottað neitt… :(

kv.
Plastik