Þið hafið kannski tekið eftir því að ég sendi inn svon 1-2 myndir á þetta áhugamál á dag. Ég geri það aðallega vegna þess að ég er með svo mikið af þeim, til að breyta reglulega um útlit og vegna þess að enginn annar gerir það.

Nú er það komið upp í vana. Ég er hins vegar orðið alveg ringluð á því hvaða myndir ég á að setja inn þannig að mér datt í huga að leita eftir uppástungum. Ef þið viljið eða getið ekki sent inn myndir sjálf er þá einhver sem ég gæti sett inn í staðinn - einhvað ákveðið sem ykkur finnst vanta? Einhver persóna, aðstæður, sérstakur þáttur. Uppástungur eða óskir? Munið bara að við reynum að halda þessu frekar spoiler-lausu - mér finnst t.d. í lagi að setja inn mynda af persónu sem hefur ekki komið fram í þáttunum sem sýndir voru á Stöð 2 svo lengi sem að það fylgir ekki ítarleg útskýring með um það hver hún er.<br><br>—————–
*Evil things have plans. They have things to do!*
——————